Aðalfundur Hestamannafélagsins Sörla verður haldinn 20. október kl. 20:00 á Sörlastöðum

Dagskrá fundarins:

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
  2. Fjöldi félagsmanna kunngerður og upplýsingar gefnar um fjölgun þeirra eða fækkun.
  3. Formaður leggur fram og skýrir skýrslu stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu ári.
  4. Gjaldkeri leggur fram og skýrir reikninga félagsins.
  5. Umræður um liði 3 og 4 og atkvæðagreiðsla um reikningana.
  6. Formenn nefnda leggi fram og skýri skýrslur um starf viðkomandi nefnda á liðnu ári.
  7. Kosning formanns.
  8. Kosning sex manna í stjórn.
  9. Kosning tveggja endurskoðenda og eins til vara.
  10. Kosning í nefndir, deildir og ráð og skal kjósa formenn sérstaklega. Í lávarðadeild er ekki kosið, sbr. 18. gr.
  11. Tillaga lögð fram til samþykktar um árgjald næsta árs.
  12. Lagabreytingar.
  13. Önnur mál sem félagið varðar.

Hér að neðan má sjá tillögur til lagabreytinga

 

Vonumst til að sjá sem flesta.

Viðburðardagsetning: 
fimmtudaginn, 20. október 2016 - 20:00