Hlutverk laganefndar er að kosta kapps um að lög félagsins og starfslýsingar séu sem vandaðastar og þjóni sem best markmiðum félagsins á hverjum tíma. Nefndin getur átt frumkvæði að lagabreytingum og sé þess óskað veitir hún stjórn og félagsmönnum aðstoð við gerð tillagna um lagabreytingar.
Netfang nefndarinnar: laganefnd@sorli.is
Laganefnd starfsárið 2021 - 2022
- Arnór Snæbjörnsson, formaður
- Darri Gunnarsson
- Stefanía Sigurðardóttir
Starfslýsing fyrir Laganefnd samþykkt 2019
1. Laganefnd skal skipuð þremur mönnum.
2. Hlutverk nefndarinnar er að kosta kapps um að lög félagsins séu sem vönduðust og þjóni sem best markmiðum félagsins á hverjum tíma. Nefndin getur átt frumkvæði að lagabreytingum og sé þess óskað ber henni að veita stjórn og félagsmönnum aðstoð við gerð tillagna um lagabreytingar.
Að öðru leiti fer starfslýsing nefndarinnar eftir lögum félagsins.