Viðburðardagsetning: 
laugardaginn, 30. janúar 2021 - 12:00
Vettvangur: 
Hraunhamarsvöllur
Frá: 
 
Fyrstu vetrarleikar vetrarins verða haldnir laugardaginn 30. janúar. Hefjast þeir stundvíslega kl.12:00 á Hraunhamarsvellinum.
 
Áhorfendur leyfðir í bílum. LH sendi fyrirspurn til sóttvarnaryfirvalda um hvort heimilt væri að leyfa áhorfendur í einkabílum á vetrarmótum í hestaíþróttum utanhúss. Í svari heilbrigðisráðuneytisins kemur fram að ekkert sé því til fyrirstöðu að því gefnu að á staðnum sé sóttvarnarfulltrúi sem tryggir að ekki verði hópamyndun fyrir utan bíla og engin veitingasala á staðnum.

Einnig verður útvarpað á rás 106,1.


Dagskrá og keppnisflokkar:

 
  • Pollar
  • Börn
  • Unglingar
  • Ungmenni
  • Byrjendaflokkur
  • Konur 2
  • Karlar 2
  • Heldri menn/konur 55 ára og eldri
  • Konur 1
  • Karlar 1
  • Opinn flokkur
  • 100 m Skeið

Pollar keppa inni í reiðhöllinni, aðstoðarmenna polla þurfa að vera með grímur.

Mótið er ætlað skuldlausum félagsmönnum í hestamannafélaginu Sörla. Hver keppandi má aðeins skrá í einn flokk og eru félagar hvattir til að sýna metnað við skráningu í flokka. Mótanefnd áskilur sér rétt til að sameina flokka ef ekki er næg þátttaka í einhverjum þeirra.
Vetrarleikar Sörla er þriggja móta röð þar sem verðlaunað er fyrir hvert mót, auk þess sem keppendur safna stigum úr öllum þremur mótunum og verða stigahæstu knaparnir í hverjum flokki verðlaunaðir á síðasta mótinu.

1.sæti gefur 11 stig
2.sæti gefur 8 stig
3.sæti gefur 6 stig
4.sæti gefur 5 stig
5.sæti gefur 4 stig

1 stig fæst fyrir þá sem taka þátt.

Á þessu móti er keppt í tölti á beinni braut. Allir keppendur í sama flokki eru saman á vellinum. Þeir ríða hver á eftir öðrum til dóms eftir útgefinni rásröð. Keppt er annars vegar í hægu tölti og hins vegar frjálsri ferð á tölti eftir fyrirmælum þular. Auk þessa er keppt í 100 m. skeiði. Riðnir eru tveir sprettir og gildir betri tíminn úr öðrum hvorum sprettinum. Sjá nánar reglur mótaraðarinnar hér:

Mótanefnd hvetur keppendur að nýta vetrarmótaröðina til að fara út fyrir þægindarammann og leggja metnað í hvaða flokk það skráir sig. Það hefur ekkert fordæmi fyrir því hvaða flokka fólk skráir sig í á stærri mótum. Hér má sjá hvernig flokkarnir eru skráðir í sportfeng og nánari lýsing á þeim.

Tölt T1- Opinn flokkur-Meistaraflokkur. Mikið keppnisvant fólk, bæði atvinnumenn og áhugamenn. Kynjablandaður flokkur. Fólk sem mjög virkt í keppni og hefur áralanga reynslu í keppni.

Tölt T1- Opinn flokkur - 1 flokkur. Keppnisvanir knapar, bæði konur og karlar skrá sig hér en flokkurinn er kynjaskiptur í keppni. Fólk sem hefur verið að keppa sem áhugamenn og eru komnir með reynslu í einhverjum keppnisgreinum.

Tölt T1 - Opinn flokkur - 2 flokkur. Minna vanir knapar, bæði konur og karlar skrá sig hér en flokkur er kynjaskiptur í keppni. Fólk sem hefur lítið keppt eða er að byrja aftur að keppa eftir langt hlé.
 
Tölt T1-Opinn flokkur Flokkur 55+ heldri menn og konur. Kynjablandaður flokkur fyrir knapa sem eru 55 á árinu eða eldri. Þeir sem kepptu í þessum flokk í fyrra (þá 50+) mega halda áfram að keppa í þessum flokk.

Tölt T1 – opinn flokkur-3 flokkur Byrjendaflokkur. Kynjablandaður flokkur fyrir knapa sem hafa aldrei keppt en langar að spreyta sig.

Pollaflokkur. Knapar 9 ára eða yngri á árinu. Keppnin verður inni í reiðhöll

Barnaflokkur = Knapar 10 - 13 ára á árinu

Unglingaflokkur = Knapar 14 - 17 ára á árinu

Ungmennaflokkur = Knapar frá 18 - 21 ára á árinu
 

Skráning inn à sportfengur.com

Skráningargjlad er 2.500 kr. fyrir tölt og 1.500 kr. fyrir skeið.
Skáningu líkur föstudaginn 29.01 2021 kl 23:59.
 
Kv.
Mótanefnd
motanefnd@sorli.is
Sörli Hestamannafélag, Íþrótt, Lífstíll