Viðburðardagsetning: 
laugardaginn, 28. mars 2015 - 8:30 to 18:00
Vettvangur: 
Sörlastaðir

Hin árlega kynbótaferð verður farin laugardaginn 28. mars. Mæting er á Sörlastaði kl. 8:30

Fyrsta stopp er Laugarbakki, síðan Miðás og Árbæjarhjáleiga og í lokin verður komið við á Kvistum.

Kostnaður við ferðina er áætlaður að hámarki 6.500 krónur, innifalið í því er rútuferðin og hádegisverður. Greiða þarf ferðina með reiðufé.  Aldurstakmark er 20 ár. Hámarksfjöldi í ferðina eru 23. Fyrstur kemur, fyrstur fær!!!

Tekið er við bókunum í ferðina í síma 897 2919 (Þórunn) eða á sorli@sorli.is