Viðburðardagsetning:
fimmtudaginn, 22. október 2015 - 20:00 to 22:00
Vettvangur:
Sörlastaðir
Frá:
Aðalfundur Hestamannafélagsins Sörla verður haldinn að Sörlastöðum fimmtudaginn 22. október kl.20:00.
Dagskrá aðalfundar:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara.
- Fjöldi félagsmanna kunngerður og upplýsingar gefnar um fjölgun þeirra eða fækkun.
- Formaður leggur fram og skýrir skýrslu stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu ári.
- Gjaldkeri leggur fram og skýrir reikninga félagsins.
- Umræður um liði 3 og 4 og atkvæðagreiðsla um reikningana.
- Formenn nefnda leggi fram og skýri skýrslur um starf viðkomandi nefnda á liðnu ári.
- Kosning formanns.
- Kosning sex manna í stjórn.
- Kosning tveggja endurskoðenda og eins til vara.
- Kosning í nefndir, deildir og ráð og skal kjósa formenn sérstaklega. Í lávarðadeild er ekki kosið, sbr. 18. gr.
- Tillaga lögð fram til samþykktar um árgjald næsta árs.
- Lagabreytingar.
- Önnur mál sem félagið varðar.
Vonumst til að sjá sem flesta félagsmenn á fundinum
Stjórnin