Ákveðið hefur verið að opna hólfið við hliðina á 400 hringnum í Hlíðarþúfum fyrir haustbeit - þetta er að sjálfsögðu bara viðrunarhólf.
Hólfinu verður ekki skipt niður, þau hross sem þar verða koma til með að vera saman í einu stóru hólfi.
Fyrst ætlum við að láta þau rífa í sig lúpínuna sem er efst í hólfinu, þannig að það þarf að fara niður brekkuna og inn í sjálft hólfið, labba svo upp með girðingunni á hægri hönd þangað til að komið er að þvergirðingu sem skiptir hólfinu og sleppa hrossunum upp fyrir hana.
Við ætlum að rukka 500 kr á hest það sem eftir er af tímabilinu, þannig að sá sem er með 2 hross greiðir 1000 kr, 3 hross 1500 kr o.s.fv. það veður að koma í ljós hversu margir nýta stykkið hvað við getum notað það lengi.
Nú verðum við að treysta á heiðarleika Sörlafélaga því að þetta er svona sameiginlegt og ekkert læst hlið.
Þið sem hafið áhuga á að nýta ykkur þetta hólf vinsamlegast sendið tölvupóst á beitarholf@sorli.is - skrifið nafn, kennitölu og fjölda hrossa og stofnuð verður krafa í heimabanka.