Á Hraunhamarsvelli, laugardaginn 7. mars fara fram Vetrarleikar 2 hjá Sörla-fólki 2020.
Mótanefnd tekur við skráningum í anddyri Sörlastaða sama dag, laugardaginn 7. mars milli 09:00 - 10:30 og mótið mun hefjast kl 11:00.
Dagskrá móts.
Kl11:00 - 100m flugskeið
- Barnaflokkur
- Unglingaflokkur
- Ungmennaflokkur
Kl 12:30 - 13:00 - HÁDEGISMATUR + Pollaflokkur riðin inni í reiðhöll .
Kl 13:00 - Byrjendaflokkur
- Konur 2
- Karlar 2
- Heldri menn og konur 55+
- Konur 1
- Karlar 1
- Opinn flokkur
- Posi verður á staðnum og laust fé.
- Sama gjald og seinast. 2.500kr á alla flokka, nema 2000 kr í skeið .
Mótið er ætlað skuldlausum félagsmönnum í hestamannafélaginu Sörla. Hver keppandi má aðeins skrá í einn flokk og eru félagar hvattir til að sýna metnað við skráningu í flokka. Mótanefnd áskilur sér rétt til að sameina flokka ef ekki er næg þátttaka í einhverjum þeirra.
Vetrarleikar Sörla er þriggja móta röð þar sem verðlaunað er fyrir hvert mót, auk þess sem keppendur safna stigum úr öllum þremur mótunum og verða stigahæstu knaparnir í hverjum flokki verðlaunaðir á síðasta mótinu.
1.sæti gefur 11 stig
2.sæti gefur 8 stig
3.sæti gefur 6 stig
4.sæti gefur 5 stig
5.sæti gefur 4 stig
1 stig fæst fyrir þá sem taka þátt.
-Á þessu móti er keppt í tölti á beinni braut. Allir keppendur í sama flokki eru saman á vellinum. Þeir ríða hver á eftir öðrum til dóms eftir útgefinni rásröð. Keppt er annars vegar í hægu tölti og hins vegar frjálsri ferð á tölti eftir fyrirmælum þular.
-Auk þessa er keppt í 100 m. skeiði. Riðnir eru tveir sprettir og gildir betri tíminn úr öðrum hvorum sprettinum.
Mótanefnd hvetur keppendur að nýta vetrarmótaröðina til að fara út fyrir þægindarammann og leggja metnað í hvaða flokk það skráir sig. Það hefur ekkert fordæmi fyrir því hvaða flokka fólk skráir sig í á stærri mótum. Hér má sjá hvernig flokkarnir eru skráðir í sportfeng og nánari lýsing á þeim.
- Tölt T1- Opinn flokkur - Meistaraflokkur. Mikið keppnisvant fólk, bæði atvinnumenn og áhugamenn. Kynjablandaður flokkur. Fólk sem mjög virkt í keppni og hefur áralanga reynslu í keppni.
- Tölt T1- Opinn flokkur - 1 flokkur. Keppnisvanir knapar, bæði konur og karlar skrá sig hér en flokkurinn er kynjaskiptur í keppni. Fólk sem hefur verið að keppa sem áhugamenn og eru komnir með reynslu í einhverjum keppnisgreinum.
- Tölt T1 - Opinn flokkur - 2 flokkur. Minna vanir knapar, bæði konur og karlar skrá sig hér en flokkur er kynjaskiptur í keppni. Fólk sem hefur lítið keppt eða er að byrja aftur að keppa eftir langt hlé.
- Tölt T1 – opinn flokkur - 3 flokkur. Byrjendaflokkur. Kynjablandaður flokkur fyrir knapa sem hafa aldrei keppt en langar að spreyta sig.
- Tölt T1-Opinn flokkur Flokkur 55+ heldri menn og konur. Kynjablandaður flokkur fyrir knapa sem eru 55 á árinu eða eldri. Þeir sem kepptu í þessum flokk í fyrra (þá 50+) mega halda áfram að keppa í þessum flokk.
- Pollaflokkur - Knapar 9 ára eða yngri á árinu. Keppnin verður inni í reiðhöll
- Barnaflokkur - Knapar 10 - 13 ára á árinu
- Unglingaflokkur - Knapar 14 - 17 ára á árinu
- Ungmennaflokkur - Knapar frá 18 - 21 ára á árinu.
Mótanefnd Sörla 2020.