Birtingardagsetning: 
fimmtudaginn, 19. desember 2019 - 13:01

Um síðustu helgi var smalað í Krýsuvík og gekk smölunin einstaklega vel. Áður höfðu, okkar "Krýsuvíkurmenn“ farið og gefið rúllur til að ná hrossunum saman. Þeirra starf er mikilvægt og óeigingjarnt en í Krýsuvík voru um ca 60 hross.

Það er samdóma álit þeirra sem framkvæmdastjóri hefur hitt að hrossin voru almennt í mjög góðu ásigkomulagi. Fólki var farið að hlakka til að taka á móti hestum sínum og hefja vetrarþjálfun.

Í ár buðu þau Ásta Snorra og Addi upp á nýja og frábæra þjónustu. Þau buðu félagsmönnum upp á að sækja fyrir þá hrossin og keyra heim að húsi fyrir sanngjarnt gjald. Að auki sönduðu þau leiðina að einhverju leiti og auglýstu það á facebooksíðunni ,,Félagsmenn Sörla“ svo að fleiri vissu af því áður en þeir leggðu af stað. Mæltist hvoru tveggja mjög  vel fyrir og voru fjölmargir sem nýttu sér heimkeyrsluþjónustuna.

Félagsskapur eins og okkar mótast af félögunum sem í honum eru. Við öll, sameiginlega, eigum einstaklega gott fólk sem félagsmenn og erum afar stolt af aukinni þjónustu sem veitt er á svo margan hátt. Aukin þjónusta gerir félagið okkar og félagssvæðið áhugaverðara og til þess fallið að fjölbreyttur hópur geti stundað sína hestamennsku, hvert á sinn hátt.   

Hafið öll bestu þakkir fyrir.

Sörli Hestamannafélag, Íþrótt, Lífstíll