Birtingardagsetning:
miðvikudaginn, 8. apríl 2020 - 21:11
Verðug áminning Landssambands Hestamanna.
Nú fer senn að líða að páskum og reikna má með aukinni umferð á reiðvegum. Förum varlega, sýnum tillitsemi og munum hjálmanotkun.
Við viljum hvetja hestamenn um land allt að hafa umferðar- og umgengisreglur Samgöngunefndar LH að leiðarljósi.
- Hestamenn víkja til hægri á reiðleiðum
- Hestar sem eru teymdir skulu ávallt vera hægramegin og ekki fleiri en tveir (þrír til reiðar)
- Reiðhjálmar eru sjálfsögð öryggistæki
- Endurskinsmerki í skammdegi veita hestum og mönnum aukið öryggi
- Lausir hundar eru ekki leyfilegir á reiðleiðum og í hesthúsahverfum
- Áfengi og útreiðar fara ekki saman
- Sýnum tillitsemi, ríðum ekki hratt á móti eða aftanundir aðra reiðmenn
- Fari margir hestamenn saman í hóp skal ríða í einfaldri röð ef umferð er á móti
- Ríðum á reiðvegum og slóðum þar sem því verður viðkomið
- Teymum hesta, rekstrar eru bannaðir í þéttbýli