Birtingardagsetning: 
þriðjudaginn, 21. október 2014 - 13:28
Frá: 

Eftirfarandi lagabreyting verður lögð fyrir  á 70. aðalfundi hestamannafélagsins Sörla sem fram fer á Sörlastöðum 30. Október 2014

Byrjun 6.gr. laganna breytist.

Var eftirfarandi: 

6. gr.

Aðalfund skal halda í október ár hvert. Til hans skal boðað með minnst tveggja vikna fyrirvara með auglýsingu í fréttabréfi félagsins, tilkynningu á heimasíðu félagsins og auglýsingum á félagssvæðinu. Í fundarboði skal vísað til laga félagsins um dagskrá.

En verður:

6.gr

Aðalfund skal halda í október ár hvert. Til hans skal boðað með minnst tveggja vikna fyrirvara með  tilkynningu á heimasíðu félagsins. Einnig skal birta auglýsingu í bæjarblaði. Í fundarboði skal vísað til laga félagsins um dagskrá.