Hin árlega folaldasýning Sörla verður haldin laugardaginn 24.febrúar á Sörlastöðum. Sýningin byrjar kl 13:00.
Vegleg verðlaun eru í boði og folatollauppboð verður á þekktum stóðhestum í hléi, meðal annars tollar undir glæsihestana Frá frá Sandhóli, Glúm frá Dallandi, Sigur frá Stóra-Vatnsskarði og Álfaklett frá Syðri-Gegnishólum. Veitingasala verður á staðnum.
Skráningar skal senda á netfangið topphross@gmail.com.
Við skráningu þarf eftirfarandi að koma fram:
- -Nafn folalds, uppruni og IS númer
- -Nöfn móður og föður folalds
- -Litur
- -Eigandi og ræktandi folalds
Skráningargjald fyrir folald er 2.000 kr og skráning er ekki gild fyrr en greiðsla hefur borist. Greiða skal inn á reikning: 0545-26-3615, kennitala: 640269-6509. Vinsamlegast sendið staðfestingu á netfangið topphross@gmail.com með nafn folalds sem skýringu.
Síðasti skráningardagur er fimmtudagurinn 22.febrúar.
Missið ekki af þessari frábæru fjölskylduskemmtun.
Hlökkum til að sjá ykkur