10. maí opnar formlega fyrir skráningar fyrir hross í Krýsuvík sumarið og haustið 2014. Hagabeitin sjálf opnar síðan 14. júní n. k.
Einungis er pláss fyrir 80 hross í Krýsuvík, svo fyrstur kemur fyrstur fær.
Umsóknir berist á netfang Krýsuvíkurnefndar:
Þar þarf að koma fram: Eigandi/greiðandi, heiti hrossa, litur og örmerkinga númer. Einnig er í lagi að hross séu frostmerkt.
Einnig má hringja í Halldóru Þorvarðardóttur í síma 895 2370 eða 555 1700
Hagabeitargjald
Hagabeitargjaldið er 2. 000 kr. fyrir hross á mánuði, greiða þarf fyrir hrossin við skráningu, fyrir fyrra tímabilið eða í þrjá mánuði. Fyrir 15. sept þurfum við að vera komin með upplýsingar um það hvort hross eigi að vera út tímabilið því þá þarf að greiða fyrir seinni 3 mánuðina, ekki er endurgreitt ef hross eru tekinn fyrr.
Aðeins skuldlausir félagsmenn í Sörla geta sent hross sín hagann í Krýsuvík.
Tímabilið
Hagabeitartímabilið er frá 15. júní til 15. desember.
Allt undir þeim anmarka að hagi og tíðarfar leyfi.
Hagabeitarskilmálar
Eftirfarandi skilmála þarf að samþykkja.
Hestamannafélagið Sörli áskilur sér allan rétt til að breyta tímabili hagabeitarinnar vegna ófyrirsjáanlegra orsaka svo sem veðurfars eða beitarþols svæðisins.
Hestamannafélagið Sörli ber ekki ábyrgð að neinu leiti á hrossum sem eru í hagabeit í Krýsuvík.
Öll hross sem eru í hagabeit í Krýsuvík verða að vera örmerkt eða frostmerkt. Einnig þarf að klippa vinstra megin í bakið bókstafinn S og líma ákveðinn lit af límbandi vinstra megin í faxið, eigendur hrossa fá frekari upplýsingar um liti þegar hrossin eru skráð.
Af gefnu tilefni. Hagabeitendur greiða fyrir þann tíma sem beðið er um fyrir hrossin þó svo þau fari fyrr úr haga.
f. h. Krýsuvíkurnefndar
Sigríður Kr. Hafþórsdóttir