Kæru útskriftarnemendur Knapamerkja.
Okkur hjá Hestamannafélaginu Sörla þykir alltaf jafn ánægjulegt að sjá hve
margir sækja þau Knapamerkjanámskeið sem eru í boði ár hvert. Þessi þátttaka
segir okkur að okkar frábæru félagsmönnum er umhugað um að bæta reiðmennsku
sína og þekkingu. Með nýrri reiðhöll sjáum við fram á að geta eflt þessa
kennslu og aðra til muna og hlökkum við því mikið til framtíðarinnar.
Á árinu luku margir nemendur Knapamerkjanámi á flestum stigum. Kennarar
Knapamerkjanámskeiða stefna á að afhenda skírteini til viðurkenningar á
árangri þann 20 ágúst n.k. kl 19:30 að Sörlastöðum.
Kæru nemar og
fjölskyldur, takið daginn frá og fjölmennum