Birtingardagsetning: 
miðvikudaginn, 10. júní 2020 - 12:11

Á stjórnarfundi Sörla í byrjun júní fól stjórn framkvæmdastjóra að gera samstarfssamning um ráðningu yfirþjálfara hjá félaginu.    

Um er að ræða framhald af tilraunaverkefni sem hófst  s.l. vetur en í því felst að færa Hestamannafélagið Sörla nær því að starfa á sama hátt og önnur íþróttafélög bæjarins sem er í takti við markmið stjórnar og kröfur styrkveitenda félagsins.  

Það er okkur því einstök ánægja að tilkynna að í dag 10.6.2020 gerðu Hestamannafélagið Sörli og Hinrik Þór Sigurðsson reiðkennari samning um að hann tæki að sér stöðu yfirþjálfara hjá Sörla. Samningurinn tekur gildi 15. júní 2020 og er til eins árs til að byrja með. 

Markmið  :

  • Að starfa í samræmi við gamalt slagorð félagsins ,,Íþrótt - Lífstíll"
  • Að auka grunnþekkingu ungra iðkenda og verða í fararbroddi á landsvísu.
  • Auka verulega þátttöku og þekkingu félagsmanna í Sörla á hestamennsku.
  • Auka þátttöku og samkeppnishæfi á stærri mótum.
  • Að Sörli verði fyrirmyndar félag í menntamálum hestamanna.
  • Að hafa gaman saman í skemmtilegasta hestamannafélagi landsins þar sem jafnræði er haft að leiðarljósi.

 

Starfssvið yfirþjálfara er m.a. að:

  • Móta heildarstefnu fyrir námskeiðahald félagsins í samstarfi við stjórn, framkvæmdastjóra og nefndir félagsins sem þar koma að.
  • Skipuleggja æfingar sem haldnar verða frá 1. september til 30. apríl ár hvert fyrir börn á aldrinum 8-18 ára. Í því felst að útbúa námsskrá, tímatöflur, manna kennara á hópa og velja/gera námsefni.
  • Skipuleggja og raða kennurum á hópa í yngri flokkum.
  • Vera tengiliður við reiðkennara í námskeiðahaldi á vegum félagsins og leggja upp með að menntaðir reiðkennarar/þjálfarar, sem eru félagar í Hestamannafélaginu Sörla og starfandi á svæðinu hafi forgang að kennslu/þjálfun.
  • Sjá um auglýsingar og upplýsingagjöf til félagsmanna varðandi námskeið og æfingar í samráði við framkvæmdastjóra.
  • Vera til aðstoðar/ráðgjafar fyrir þá knapa sem það kjósa á Landsmótum og Íslandsmótum fyrir Hestamannafélagið Sörla.
  • Vera í samskiptum við félagsmenn við kynningu á starfinu.

Um leið og við bjóðum Hinrik velkominn til samstarfs langar okkur að segja að við hlökkum mikið til samstarfsins og stefnum að ennþá betra starfi í framtíðinni.

 

Stjórn og framkvæmdastjóri

 

Sörli Hestamannafélag, Íþrótt, Lífstíll