Birtingardagsetning:
sunnudaginn, 14. apríl 2019 - 15:55
Frá:
Eftir hvassviðrið síðustu daga verðum við öll að athuga með heyrúllurnar/baggana okkar. Það eru allstaðar lausir flaksandi plastsendar, sem getur verið stórhættulegt því hrossin geta fælst.
Einnig væri mjög gott af að við gætum litið aðeins í kringum okkur og tekið allt laust fjúkandi plast því við viljum reyna að hafa snyrtilegt allstaðar hjá okkur.