Birtingardagsetning: 
föstudaginn, 17. júlí 2020 - 11:50

Í ár eins og síðastliðið ár ætlum við Hestamannafélagið Sörli að vera í samstarfi við tvo aðila með reiðnámskeið í sumar Reiðskólan Fákar og fjör og Íshesta.

Síðastliðin tvo ár hefur Reiðskólinn Fákar og fjör verið starfræktur á Álftanesi en í ár verður hann hér á Sörlasvæðinu.
Námskeiðin eru sannkölluð ævintýranámskeið og henta vel fyrir krakka sem hafa stundað hestamennsku og eiga jafnvel eigin hest og geta komið með hann. Skráning og frekari upplýsingar hér.

Reiðskólinn hjá Íshestum er starfræktur hér á félagsvæði Sörla og hefur samstarfið verið í mörg ár og verður starfæktur með sama sniði og undan farin ár.
Námskeiðin hafa verið afar vinsæl og mjög vel sótt í gegnum tíðina. Skráning og frekari upplýsingar hér.

 

Sörli Hestamannafélag, Íþrótt, Lífstíll