Í ár ætlar Hestamannafélagið Sörli að vera í samstarfi við tvo aðila með reiðnámskeið í sumar, Reiðskólann á Álftanesi og Íshesta.
Reiðskólinn á Álftanesi var starfræktur í fyrsta skipti í fyrra sumar og naut hann mikilla vinsælda, Sörla krakkar ganga fyrir skráningu á námskeiðin til 20. maí.
Námskeiðin eru sannkölluð ævintýranámskeið í stórbrotinni náttúru á félagsvæði hestamannafélagsins Sóta. Skráning og frekari upplýsingar hér.
Reiðskólinn hjá Íshestum er starfræktur hér á félagsvæði Sörla og hefur samstarfið verið í mörg ár og verður starfæktur með sama sniði og undan farin ár.
Námskeiðin hafa verið afar vinsæl og mjög vel sótt í gegnum tíðina. Skráning og frekari upplýsingar hér.