Nú í september hefjast reiðmennskuæfingar hjá hestamannafélaginu Sörla af fullum krafti.
Um er að ræða skipulagða kennslu fyrir félagsmenn í hestamannafélaginu Sörla, sem nær yfir allt tímabilið, haustönn og vorönn.
Það opnar fyrir skráningu á mánudaginn 6.sept, eftir hádegi á æfingarnar fyrir yngri iðkendur félagsins, gegnum Sportabler kerfið og við hvetjum sem allra flesta til þess að nýta sér það að fá skipulagðar, einstaklingsmiðaðar æfingar í hestamennskunni alveg frá hausti og fram á vor.
Til að skrá yngri en 18 ára í Sportabler þarf að forráðamaður að stofna aðgang:
sportabler.com/shop/sorli
Velja tungumál
Innskrá í Sportabler
Nýskrá
Fylla út
Senda
Eftir að búið er að stofna sinn eigin aðgang þá er aftur farið inn á sportabler.com/shop/sorli valið námskeið fyrir iðkendur, hægt er að skipta greiðslum og nýta frístundastyrk.
Frá miðjum október verður svo farið af stað með fullorðinshóp á sama hátt, sem verður í gangi fram á vorið, bæði bókleg og verkleg kennsla.
Skráningu er lokið og kominn biðlisti.
Reiðmennskuæfingar yngri flokka
- Hefjast á fullu mánudaginn 20. september og haustönn stendur til 16. desember
- Kynningarfundur fyrir skráða iðkendur og forráðamenn fimmtudaginn 16. september kl. 18:00 á Sörlastöðum
- Æfingar eru að jafnaði tvisvar í viku, einn verklegur tími og einn bóklegur á meðan á bóklegum lotum stendur.
- Upphaf haustannarinnar er bóklegur og verkleg kennsla hefst 4. október.
- Verkleg kennsla fer fram á mánudögum
- Bóklegir tímar eru teknir í kennslulotum á fimmtudögum yfir tímabilið, lota 1 er 23. Sept, 30. Sept, 7. Okt og lota 2 er 4. Nóv, 11. Nóv og 18. Nóv.
- Fimmtudaginn 25. nóv er haustfjör haustannarinnar í boði æskulýðsnefndar í stað bóklegs tíma.
- Á haustönn eru 13 verklegir tímar (þar af 11 á hesti) og 7 bóklegir tímar.
- Verð á haustönn 55.000 kr.
- Skráning á vormisseri hefst í nóvember
Áherslur í bóklegri kennslu reiðmennskuæfingar
- Að nemendur skilji helstu hugtök í reiðmennsku og þjálfun
- Bókleg kunnátta á helstu æfingum sem notaðar eru í þjálfun
- Hreyfifræði- gangtegundir
- Grunnatriði í atferlisfræði
- Grunnatriði í heilsufræði hestsins
- Læra um fóðrun og umhirðu (bóklegt og verklegt)
- Helstu sjúkdómar
Flokkaskipting verkleg kennsla
- 6. flokkur 8-10 ára (fædd 2012-2014) - Pollaflokkur, námskeið fyrirhugað í nóvember.
- 5. flokkur 11-13 ára (fædd 2009-2011)
- 4. flokkur 14-16 ára (fædd 2006-2008)
- 3. flokkur 17 ára og eldri (fædd 2005 og fyrr)
- Fullorðinshópur sem verður ætlaður 18 ára og eldri
Áherlslur í knapaþjálfun almennt:
- Hugarfarsþjálfun
- Skipulag þjálfunar
- Markmiðasetning
- Vinna með hræðslu
Verklegar áherslur:
- 8-10 ára: Efla áhuga iðkenda á íþróttinni á breiðum grunni. Kynna grunngildi góðrar hestamennsku og leyfa iðkendum að kynnast íþróttinni á margan hátt. Leikir og fjör til þess að hópurinn kynnist.
- 11-13 ára: Iðkendur læri helstu hugtök í reiðmennsku. Kunni skil á grunnæfingum í liðkandi vinnu. Fái fræðslu um gildi grunnþjálfunar reiðhesta. Læra handhægar æfingar um markmið og hugarfarsþjáfun.
- 14-16 ára: Iðkendur fái innsýn í mikilvægi þjálfunar í vinnuformi. Öðlist yfirsýn í liðkandi og styrkjandi vinnu og grunnfærni í vinnu við hendi.
- 17 ára og eldri: Allt ofan talið.
Hver flokkur skiptist upp í undirgreinar á vorönn þar sem knapar velja áhugasvið. Það verða keppnishópar, almenn þjálfun og fleira ef hópar eru nógu stórir.
Reiðmennskuæfingar fullorðinna
- Hefjast mánudaginn 18. október og haustönn stendur til 16. desember
- Vorönn hefst mánudag 10. janúar og stendur til 14. apríl
- Þar á eftir taka önnur námskeið félagsins við
- Æfingar eru einn verklegur tími í viku, og bóklegir tímar með jöfnu millibili yfir tímabilið.
- 9 verklegir reiðtímar á haustönn og 14 á vorönn, samtals 23 verklegir reiðtímar
- Bóklegir tímar eru 4. nóv, 2. des, 13 jan, 10.feb, 10 mars og 7. apríl alls 6 bóklegir tímar.
- Kennsla er alls 29 tímar (bóklegt og verklegt)
- Reiknað er með 3 nemendum í hóp í verklegri kennslu
- Verð 105.000 kr
Áherslur í bóklegri kennslu reiðmennskuæfingar
- Að nemendur skilji helstu hugtök í reiðmennsku og þjálfun
- Bókleg kunnátta á helstu æfingum sem notaðar eru í þjálfun
- Hreyfifræði- gangtegundir
- Grunnatriði í atferlisfræði
- Grunnatriði í heilsufræði hestsins
- Læra um fóðrun og umhirðu (bóklegt og verklegt)
- Helstu sjúkdómar
Flokkaskipting verkleg kennsla
- 6. flokkur 8-10 ára (fædd 2012-2014)
- 5. flokkur 11-13 ára (fædd 2009-2011)
- 4. flokkur 14-16 ára (fædd 2006-2008)
- 3. flokkur 17 ára og eldri (fædd 2005 og fyrr)
- Fullorðinshópur sem verður ætlaður 18 ára og eldri
Kennari í bóklegri kennslu: Hinrik Þór
Kennarar í verklegri kennslu: Anna Björk Ólafsdóttir, Hinrik Þór Sigurðsson, Snorri Dal og Sigurður Ævarsson.
Allir kennarar sem koma að æfingunum eru menntaðir reiðkennarar eða hafa viðurkennda þjálfaramenntun ÍSÍ.