Kæru félagar og notendur reiðhallar Sörla
Takmörkunum verður aflétt að hluta 4. maí n.k.
Tímabundnar reglur verða á þann veg að á opnum tímum í höllinni mega að hámarki vera 4 manns í einu.
Fjöldatakmarkanir nemenda í leik- og grunnskólum sem iðka íþróttir innandyra falla alveg niður. Reiðhöllin verður lokuð, eins og vant er, á meðan á námskeiðum barna á leik- og grunnskólaaldri stendur.
Hámarksfjöldi fullorðinna nemenda á námskeiði eru 3, auk kennara.
Allir þurfa að halda 2ja metra bili á milli einstaklinga og snertingar eru óheimilar.
Áhorfendapallar og hesthús verður lokað sem og salernisaðstaða.
Notkun á sameiginlegum búnaði skal haldið í lágmarki og ber að sótthreinsa á milli notkunar. Þetta á við um áhöld til að verka upp tað.
Förum varlega og höfum gaman saman svo að vorið verði skemmtilegt með okkar frábæra starfi.
Stjórnin