Birtingardagsetning: 
miðvikudaginn, 10. febrúar 2016 - 10:13

Nú styttist í Landsbankamótaröðina hjá Sörla. Fyrsta mótið verður haldið 27. febrúar. Hér má sjá nýjar og uppfærðar reglur Landsbankamótsins

Reglur Landsbankamótaraðar Hestamannafélagsins Sörla 2016

I. Gildissvið
Reglur þessar eru byggðar á lögum og reglugerðum Landssambands hestamanna um keppni á vegum LH (hér eftir reglur LH). Þar sem reglum þessum sleppir gilda reglur LH nema annað sé sérstaklega tekið fram í reglum þessum.

II. Tegund
Mótið er lokað og ætlað skuldlausum félagsmönnum í hestamannafélaginu Sörla.
Mótið er gæðingakeppni og fer eftir 7. kafla reglna LH. Keppni er á beinni braut.

III. Sérreglur um skoðun á búnaði
Fótaskoðun fer ekki fram á mótaröðinni. Keppandi ber sjálfur ábyrgð á að gæta velferðar hestsins til hins ýtrasta og að hann fylgi reglum LH þar um. Mótanefnd Hestamannafélagsins Sörla og/eða dómari áskilur sér rétt til skoða búnað og að vísa knapa og hesti úr braut ef búnaður hests eða knapa er ámælisverður eða augljóslega til þess gerður að skaða velferð hestsins.

IV. Sérreglur um framkvæmd móta
Á fyrsta og öðru móti mótaraðarinnar er keppt í tölti. Keppt er annars vegar í hægu tölti og hins vegar frjálsri ferð á tölti sbr. gr. 7.2.6 í reglum LH (Tölt A-flokkur, frjáls hraði) eftir fyrirmælum þular. Auk þessa er keppt í 100 m. skeiði. Riðnir tveir sprettir og gildir besti tíminn úr öðrum hvorum sprettinum.  

Á þriðja móti mótaraðarinnar er keppt í þrígangi. Knapi hefur sjálfur val um hvaða gangtegundir hann sýnir, en sýna ber þrjár af fimm viðurkenndum gangtegundum íslenska hestsins.Ákveðna vegalengd á beinni braut.

Flokkar sem standa til boða á mótaröðinni eru:

  • Skeið
  • Pollaflokkur
  • Barnaflokkur
  • Unglingaflokkur
  • Ungmennaflokkur
  • Konur 1.og konur 2.
  • Karlar 1 og karlar 2.
  • 55+Heldri menn og konur.
  • Opinn flokkur

Hver keppandi má aðeins skrá í einn flokk og einn hest í fyrstu tveimur mótunum en á þriðja mótinu má skrá fleiri en einn hest. Mótanefnd áskilur sér rétt til að fella niður flokka eða sameina flokka ef svo ber undir vegna meðal annars dræmrar þátttöku.

Séu 20 eða færri keppendur skráðir í flokk skipar dómari 5 efstu hesta í sæti. Séu keppendur 21 eða fleiri skráðir í flokk velur dómari 10 efstu hesta sem ríða úrslit. Að þeim loknum velur dómari 5 efstu hesta í sæti.

V. Keppendur, aðstandendur og aðrir viðstaddir
Keppendur skulu sýna íþróttamannslega hegðun og bera virðingu fyrir öðrum keppendum og hrossum.Knapar hlíði fyrirmælum stjórnanda/þular og ríði eftir rásröð eftir því sem við verður komið.
Aðstandendur skulu sömuleiðis sýna íþróttamannslega hegðun og bera virðingu fyrir keppendum og öðrum aðstandendum. Aðstandendur keppenda skulu ekki hafa afskipti af keppendum á meðan keppendur eru í braut. Aðstandendum er þó heimilt að aðstoða keppendur í polla- og barnaflokki.
Mótanefnd Hestamannafélagsins Sörla og/eða dómari áskilur sér rétt til að vísa keppanda, aðstandanda eða öðrum viðstöddum frá braut ef hegðun viðkomandi er til þess fallin að hafa neikvæð eða truflandi áhrif á keppendur, aðstandendur eða aðra viðstadda eða framkvæmd mótsins.

VI. Stigasöfnun
Á mótaröðinni keppir knapi til stiga. Aðeins er hægt að safna stigum í einum flokki. Knapi sem hafnar í fyrsta sæti fær 11 stig, öðru sæti 8 stig, þriðja sæti 6 stig, fjórða sæti 5 stig, fimmta sæti 4 stig, sjötta til tíunda sæti 3 stig og aðrir mættir 1 stig. Ekki er keppt til stiga í pollaflokk.

VII. Kvartanir
Allar athugasemdir og kvartanir vegna einhvers sem varðar fyrirkomulag mótsins eða annað tengt mótinu skulu berast á netfangið motanefnd@sorli.is

Með kveðju, mótanefnd Sörla.

 

Mótaröð Sörla & Landsbankans