Birtingardagsetning: 
fimmtudaginn, 14. janúar 2016 - 15:47

Æskulýðsnefnd Sörla auglýsir eftir skráningu á námskeið í reiðtygjasmíði sem til stendur að halda þann 30. janúar kl. 11:00-13:00. Kennari er Sigrún Sigurðardóttir sem er Sörlafélögum að góðu kunn. Lágmarks þátttaka svo hægt sé að halda námskeiðið eru 8 börn/unglingar/ungmenni. Efniskostnaður er 3500 kr. pr. barn/ungling/ungmenni. Börn undir 10 ára aldri þurfa að vera í fylgd foreldris/forráðamanns. Vegna fjölda fyrirspurna hefur verið ákveðið að bjóða einnig fullorðnum að taka þátt í námskeiðinu. Kostnaður fyrir fullorðna 5.500 kr. Skráningu lýkur mánudaginn 25. janúar. Skráning fer fram á sorli@sorli.is

 

Sörli Hestamannafélag, Íþrótt, Lífstíll