Birtingardagsetning:
miðvikudaginn, 29. janúar 2020 - 13:51
Frá:
Nú hefst Meistaradeildin í hestaíþróttum á morgun fimmtudaginn 30. janúar með fjórgangi en keppt verður í TM Höllinni í Víðidal.
Hvetjum alla til að skella sér í Fák og horfa á deildina.
Herlegheitin byrja kl 19:00
Einnig verður hægt að mæta á Sörlastaði og horfa á deildina í glænýju stórkostlegu sjónvarpi sem tengt er við fína hljóðkerfið í salnum.
Gæti orðið skemmtileg stemning og fínn undirbúningur fyrir Þorrareið og Þorrablót sem verður hjá okkur á laugardaginn.