Birtingardagsetning: 
þriðjudaginn, 5. apríl 2016 - 14:19

Við viljum minna á að lausaganga hunda er bönnuð á Sörlasvæðinu. Við viljum biðja  hundaeigendur á að virða það að ekki er leyfilegt að ríða út með lausa hunda né hafa þá lausa á svæðinu. Vert er að hafa í huga að ef slys verða, og talið er að laus hundur hafi valdið því,  þá er eigandi hundsins skaðabótaskyldur og tölur eru þá fljótar að hlaupa á hundruðum þúsunda eða jafnvel mörgum milljónum ef þolandi hlýtur varanlega örorku. Hundaeigendur sýnum öðrum tillitssemi og höfum hundana á svæðinu í bandi.

Sörli Hestamannafélag, Íþrótt, Lífstíll