Birtingardagsetning: 
mánudaginn, 14. mars 2016 - 14:43

Landsbankamót II verður haldið laugardaginn 19. mars kl. 12:00. Opið er fyrir skráningu og er hún opin út 17. mars. Þeir sem hafa nú þegar skráð sig þurfa ekki að skrá sig aftur.

Hér eru leiðbeiningar hvernig flokkar eru skilgreindir í sportfeng.

  • Annað - Opinn flokkur.  Mikið keppnisvant fólk, bæði atvinnumenn og áhugamenn. Kynjablandaður flokkur.  Fólk sem mjög virkt í keppni og hefur áralanga reynslu í keppni.
  • Annað - Opinn flokkur - 1 flokkur.   Keppnisvanir knapar, bæði konur og karlar skrá sig hér en flokkurinn er kynjaskiptur í keppni. Fólk sem hefur verið að keppa sem áhugamenn og eru komnir með reynslu í einhverjum keppnisgreinum.
  • Annað - Opinn flokkur - 2 flokkur.  Minna vanir knapar, bæði konur og karlar skrá sig hér en flokkur er kynjaskiptur í keppni.  Fólk sem hefur lítið keppt eða er að byrja aftur að keppa eftir langt hlé.
  • Annað - Meira vanir.  Flokkur 55+ heldri menn og konur. Kynjablandaður flokkur fyrir knapa sem eru 55 á árinu eða eldri.  Þeir sem kepptu í þessum flokk í fyrra (þá 50+) mega halda áfram að keppa í þessum flokk.
  • Annað - Annað.  Byrjendaflokkur.  Kynjablandaður flokkur fyrir knapa sem hafa aldrei keppt en langar að spreyta sig.
  • Annað - Pollaflokkur.  Knapar 9 ára eða yngri á árinu.  Keppnin verður inni í reiðhöll
  • Barnaflokkur = Knapar 10 - 13 ára á árinu
  • Unglingaflokkur = Knapar 14 - 17 ára á árinu
  • Ungmennaflokkur = Knapar frá 18 - 21 ára á árinu