Birtingardagsetning:
mánudaginn, 7. apríl 2014 - 15:27
Frá:
Landsbankamót III og það síðasta í vetrarmótaröð Sörla verður haldið um næstu helgi 11. og 12. apríl að Sörlastöðum. Þetta er mjög skemmtilegt þrígangsmót, bæði fyrir þátttakendur og áhorfendur. Að auki er keppt í 100 m. skeiði.
Skráning:
Opnað verður fyrir skráningu á morgun mánudag 7. apríl og líkur henni miðvikudaginn 9 .apríl á miðnætti. mikilvægt er að keppendur vandi vel skráningu knapa og hest. Gefa þarf upp IS númer hests. Athugið að einungis er tekið á móti skráningum í gegnum skraning.is. Mótið er opið öllum skuldlausum Sörlafélögum við félagið.
Fyrirkomulag:
Sýna skal a.m.k. þrjár gangtegundir í fjórum ferðum. Knapi hefur sjálfur val um hvaða gangtegundir hann sýnir, en sýna ber þrjár af fimm viðurkenndum gangtegundum íslenska hestsins. Dómskali gæðingakeppni gildir. Gefin er ein einkunn fyrir tölt. Ef bæði er sýnt hægt og greitt tölt gildir hærri einkunn. Í 100m skeiði eru riðnir tveir sprettir og gildir besti tíminn úr öðrum hvorum sprettinum.
Keilur afmarka þar sem hestur er í dómi. Keppandi skal vera tilbúinn á brautarenda þegar knapi á undan er í braut. (sjá nánar reglur Landsbankamótaraðar sjá neðar á facebook síðu Mótanefndar).
Drög að dagskrá:
Athugið að dagskrá getur riðlast v. forfalla hesta. Knapar verða því að fylgjast vel með dagsskrá og fyrirmælum þular. Útvarpað verður frá mótinu á útvarpstíðninni 106,1 .
Föstudagur 11. apríl
kl. 18:00
- Unglingar
- Ungmenni
- Úrslit unglingar
- Úrslit ungmenni
- Skeið
Laugardagur 12. apríl
kl 10:00
- Börn
- Fullorðnir (forkeppni blönduð úr öllum flokkum)
- Hádegishlé
- Pollar
- Fullorðnir (forkeppni blönduð úr öllum flokkum)
- Úrslit 3.flokkur
- Úrslit 2. flokkur
- Úrslit 50+
- Úrslit 1. flokkur
- Úrslit Opinn flokkur
Stigakeppni knapa:
Stigin reiknast eftir forkeppni. Ef knapar eru jafnir að stigum eftir þriðja og síðasta mótið þá raðast keppendur þannig að sá sem verður hærri i ùúrslitum vinnur hlýtur hærra sætið i stigakeppni knapa.
Verðlaunaafhending fyrir stigahæstu knapana er strax að loknu móti í félagssal Sörla.
Kveðja Mótanefndin.