Birtingardagsetning: 
sunnudaginn, 20. desember 2015 - 13:04

Jólaball Spretts, Fáks, Harðar, Sóta og Sörla í Samskiptahöllinni.

Sprettur ásamt hestamannafélögunum Fáki,Herði, Sóta og Sörla ætla að halda jólaball í veislusal Spretts í Samskipahöllinni 27. desember kl. 14 -16.
Skemmtilegt jólaball í vændum þar sem dansað verður í kringum jólatré, jólasveinar með góðgæti í poka og meðlimir í brokkkórnum mæta á svæðið og halda uppi stemningu og söng.

Allir hjartanlega velkomnir og vonumst til að sjá sem flesta

 

Sörli Hestamannafélag, Íþrótt, Lífstíll