Birtingardagsetning: 
föstudaginn, 12. maí 2017 - 13:33

Helstu verkefni eru:

Rusl: Hreinsa þarf rusl í hverfinu og á þeim svæðum sem tengjast hestamannafélaginu.

Í Hlíðarþúfum verður löggð áhersla á eftirfarandi:

  • Málning og annað viðhald: Eigendur og leigjendur eru hvattir til að mála og laga það sem þarf að laga t.d. þakkanta.
  • Reið- og tamningagerði: Lögð verður áhersla á að mála „tunnuna“ og einnig að moka frá veggjum hennar og undan grindinni á járngerðinu og færa jarðveginn inn á sporaslóðina. Það þarf einnig að gera í „Hlíðargerðinu“.

Í efrahverfinu verður löggð áhersla á eftirfarandi:

  • Hreinsa rusla og í götum, í kringum hesthús og á sameiginlegum svæðum.
  • Snyrta í kringum hesthús.

Gámar verða þrír á svæðinu Einn gámur fyrir almennt rusl við Sörlastaði og tveir í Hlíðarþúfum, annar eingöngu fyrir plast utan af rúllum og hinn fyrir annað rusl. Athugið að einungis "heyplast" á að fara í plastgáminn, ekki snæri, net utan af rúllum eða annað.

Eftir að vinnu lýkur verða grillaðar pylsur í nýja gerðinu við Hlíðarþúfur.