Birtingardagsetning:
fimmtudaginn, 6. júní 2019 - 13:16
Frá:
Tilkynning frá mótsstjóra hjólreiðakeppninnar Bláalónsþrautin:
Hjólreiðakeppni Bláalónsþrautarinnar verður á laugardagskvöldið 8. júní. Kaldárselsvegur verður því lokaður og vegurinn meðfram Hvaleyrarvatni út á Krýsuvíkurveg frá ca. kl. 19:45 til 20:15.
Vinsamlega tilkynnið ykkar fólki og félagsmönnum um þetta.
Við biðjumst velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda.
Fyrir hönd Hjólreiðafélags Reykjavíkur, þakkir fyrir skilning, Jón Gunnar Kristinsson mótsstjóri