Birtingardagsetning: 
miðvikudaginn, 10. september 2014 - 21:03
Boðið verður upp á þá nýjung hjá hestamannafélaginu Sörla að börn frá 6 til 13 ára geta nú stundað hestamennsku 1x í viku, á hausmánuðum. Allur búnaður er innifalinn, þ.m.t. aðgangur að hesti og nauðsynlegum búnaði. Kennt verður á fimmtudögum. Takmarkaður fjöldi þátttakenda. Kennarar eru Sigrún Sigurðardóttir, einn reynslumesti reiðkennari landsins, og Þórdís Anna Gylfadóttir, reiðkennari frá Háskólanum á Hólum. Lögð verður áhersla á bóklega kennslu, ásetuæfingar, ýmsa hestaleiki, sýnikennslur o.fl. en ekki almenna reiðkennslu. Skráning fer fram á www.ibh.felog.is fyrir 1.okt. nk. 
Verð kr.18.000. ALLIR VELKOMNIR! Nánari upplýsingar gefa Sigrún s.896-1818 og Þórdís s.868-7432.