Á Stóðhestaveislunni um liðna helgi fór í gang sala á happdrættismiðum til styrktar hestamanninum Róberti Veigari Ketel sem nú glímir við mjög erfið veikindi. Sýningargestir sýndu samhug í verki og voru duglegir að kaupa miða, en margir sem ekki voru á staðnum hafa lýst yfir áhuga á að taka þátt og nú er hægt að kaupa miða í hestavöruverslunum Líflands, Ástundar, Top Reiter, hjá Baldvini og Þorvaldi og Hestum og mönnum. Miðarnir verða til sölu út vikuna, en dregið verður í happdrættinu eftir helgi. Miðaverð er aðeins kr. 1.000 og fjöldi flottra vinninga í boði svo nú er um að gera að slá tvær flugur í einu höggi og styðja félaga okkar og freista gæfunnar um leið.
Vinningaskrá í happdrætti - Gefandi:
- 1 klst reiðkennsla Agnes Hekla Árnadóttir
- 100.000 kr. vöruúttekt í Ástund, Austurveri Ástund
- 50.000 kr gjafabréf frá Equsana Equsana
- Dekurpakki fyrir tvo hjá Laugarvatn Fontana Laugarvatn Fontana
- Eins mánaðar tamning í Vesturkoti Þórarinn Ragnarsson
- Eitt bretti af spæni frá Furuflís Furuflís
- Eitt bretti af spæni frá Furuflís Furuflís
- Eitt bretti af spæni frá Furuflís Furuflís
- Folatollur undir Arð frá Brautarholti Snorri Kristjánsson
- Folatollur undir Boða frá Breiðholti Helgi Jón Harðarson
- Folatollur undir Ellert frá Baldurshaga Baldur Eiðsson
- Folatollur undir Glúm frá Dallandi Gunnar og Þórdís
- Folatollur undir Hákon frá Ragnheiðarstöðum Helgi Jón Harðarson
- Folatollur undir Herkúles frá Ragnheiðarstöðum Helgi Jón Harðarson
- Folatollur undir Kveik frá Stangalæk Birgir Leó Ólafsson
- Folatollur undir Ljósvaka frá Valstrýtu Guðjón Árnason
- Folatollur undir Sjóð frá Kirkjubæ Alex Hoop
- Gisting fyrir tvo með morgunverð, þriggja rétta kvöldverð og aðgana að Riverside Spa á Hótel Selfoss Hótel Selfoss
- Gisting og matur á Hótel Eldborg í tvær nætur og ferð á Löngufjörur sumarið 2018 Hótel Eldborg
- Gjafakarfa með góðgæti Friðheimar
- Gjafakarfa með góðgæti Friðheimar
- Gjafakarfa með góðgæti Friðheimar
- Málverk eftir listakonuna Helmu Helma
- Reflect ábreiða frá Hrímni Hrímnir
- Reflect ábreiða frá Hrímni Hrímnir
- Reflect ábreiða frá Hrímni Hrímnir