Með nýju fyrirkomulagi í afreksmálum LH hefur verið ákveðið að setja af stað verkefni fyrir unga og metnaðarfulla knapa, það kallast Hæfileikamótun LH. Verkefnið verður á ársgrundvelli og er fyrsta skref og undirbúningur fyrir U-21 árs landslið. Ný afreksstefna LH verður birt á heimasíðu sambandsins á næstunni.
Hæfileikamótun LH fer af stað 2020, þar munu koma saman til æfinga ungir og hæfileikaríkir knapar víðsvegar af landinu. Verkefnið samanstendur af 6 hópum sem verða staðsettir í hverjum landshluta fyrir sig. Fjöldi knapa í hóp er 8. Gjaldgengir í hópinn eru unglingar á aldrinum 14-17 ára (unglingaflokkur). Frábært tækifæri fyrir unga knapa til að undirbúa sig með markvissri kennslu til að takast á við verkefni bæði hérlendis og á erlendum vettvangi t.d. Norðurlandamóti. Sýnum karakter verkefnið verður haft til hliðsjónar við störf hópanna. Nálgast má lýsingu á verkefninu á þessari slóð: https://www.synumkarakter.is/
Markmið Hæfileikamótunar LH er að:
- Fjölga þeim ungu knöpum sem fylgst er með á landsvísu
- Undirbúa unga knapa fyrir hefðbundin landsliðsverkefni
- Að byggja upp til framtíðar knapa í fremstu röð
- Kynna stefnu LH í afreksmálum fyrir félögum og vinna í samvinnu með þeim
- Stuðla að uppbyggilegu afreksstarfi víðsvegar um landið.
Viðburðir
- Janúar – helgarnámskeið (laugard/sunnud-einstaklingskennsla með hesti 45min)
- Mars – helgarnámskeið (laugard/sunnud-einstaklingskennsla með hesti 45min)
- Apríl/maí – helgarnámskeið (laugard/sunnud-einstaklingskennsla með hesti 45min)
- Maí – vinna vetrarins yfirfærð á keppnisvöll
- Sept – allir hóparnir saman án hests – sýnikennslur, hópefli og fræðsla
Þjálfarar og staðsetningar
Hópur 1 Höfuðborg
Þjálfari Hanna Rún Ingibergsdóttir
25-26.janúar Sprettur
21-22.mars Hörður
2-3.maí Sörli
Maí ótímasett
Hópur 2 Höfuðborg
Þjálfari Gústaf Ásgeir Hinriksson
11-12.janúar Fákur
29. feb-1.mars Máni
25-26.apríl Sprettur
Maí ótímasett
Hópur 3 Vesturland
Þjálfari Fanney Dögg Indriðadóttir
25-26.janúar Borgfirðingur
14-15.mars Borgfirðingur
25-26.apríl Borgfirðingur
Maí ótímasett
Hópur 4 Austurland
Þjálfari Ásdís Helga Sigursteinsdóttir
25-26.janúar Freyfaxi
14-15.mars Freyfaxi
25-26.apríl Freyfaxi
Maí ótímasett
Hópur 5 Norðurland
Þjálfari Barbara Wenzl
18-19.janúar Léttir
7-8.mars Skagfirðingur
25-26.apríl Skagfirðingur
Maí ótímasett
Hópur 6 Suðurland
Þjálfari Sigvaldi Lárus Guðmundsson
25-26.janúar Geysir
7-8.mars Geysir
2-3.maí Geysir
Maí ótímasett
Kostnaður knapa er 100.000kr fyrir árið. Við bendum á möguleika knapa til að leita fjárhagslegs stuðnings til síns félags, sveitarfélags, fyrirtækja og einstaklinga.
Í umsókn er hægt að senda tilvísun á myndband af knapa sem er á Worldfeng frá Landsmótum eða link af youtube.
Annars skal senda myndaband af knapa sýna gangtegundirnar (frjálst er að sýna fimiæfingar). Myndbönd skulu send á netfangið vilfridur@lhhestar.is
Umsóknarfrestur er til miðnættis þriðjudaginn 3. desember 2019. Hópar verða tilkynntir um miðjan desember.
Verkefnastjóri er Vilfríður F. Sæþórsdóttir. Upplýsingar er hægt að nálgast í gegnum netfangið vilfridur@lhhestar.is.