Hæfileikamótun LH 2021-2022 verður með gjörbreyttu sniði frá því sem verið hefur. Lögð verður áhersla á að höfða til metnaðarfullra afreksknapa framtíðarinnar sem m.a. stefna á að keppa fyrir Íslands hönd í framtíðinni.
Hæfileikamótun LH er því leiðin inn í U21 landsliðshóp LH og gefur einnig möguleika á þátttöku í unglingaflokki á Norðurlandamóti 2022.
Drög að dagskrá vetrarins er eftirfarandi:
- Heimsókn að Hólum í október - Metnaðarfull námshelgi með reiðtímum á skólahestum Hólaskóla ásamt sýnikennslu og fyrirlestrum frá reiðkennurum og öðru fagfólki.
- Tvær kennsluhelgar eftir áramót - Staðsetning ákveðin í samræmi við búsetu þátttakenda.
- Kennsla á keppnisvelli - Einn reiðtími í upphafi keppnistímabils utanhúss.
- Þrír fyrirlestrar.
- Lokahittingur í maí/júní þar sem allir hittast í hópefli og fræðslu.
- Þátttaka í viðburðum á vegum landsliðsnefndar og landsliðhópa LH.
- Knapar í hæfileikamótun fá jakka frá Top Reiter.
Yfirkennari er Sigvaldi Lárus Guðmundsson sem mun kenna öllum hópum ásamt einum aðstoðarkennara hverju sinni.
Umsóknum skal skilað á sérstöku eyðublaði á vefsíðu LH og umsóknarfrestur er til 4. október.
Þátttökugjald er 30.000 kr. fyrir allt árið.