Birtingardagsetning: 
þriðjudaginn, 20. febrúar 2018 - 10:43

Loksins er komið að Grímuleikum Sörla 2018. Leikarnir verða haldnir nk. sunnudag kl 13.00 á Sörlastöðum. Skráning verður í anddyri reiðhallarinnar milli kl 11 og 12 samdægurs. Einnig er hægt að senda inn skráningu fyrr á vefpóstinn aeskulydsnefnd@sorli.is þar sem fram þarf að koma: nafn knapa, nafn og uppruni hests og gervi.

Í boði verða eftirfarandi flokkar:

  • Pollar teymdir
  • Pollar ríðandi
  • Flokkur 10-15 ára
  • Flokkur 16 ára og eldri

Þáttökugjald er 1000 kr. nema frítt er fyrir polla.

Að leikum loknum verður grímuball þar sem sleginn verður kötturinn úr tunnunni.

Hlökkum til að sjá ykkur! Æskulýðsnefnd

Sörli Hestamannafélag, Íþrótt, Lífstíll