Birtingardagsetning: 
föstudaginn, 10. maí 2019 - 13:27

Nú er sumarið á næsta leiti og við í Krýsuvíkurnefnd erum farin að huga að girðingavinnu í Krýsuvík. Það þarf að yfirfara allar girðingar og laga eftir veturinn. Ef einhverir hafa áhuga á að aðstoða okkur í þeirri vinnu endilega hafið samband við Ólaf 863 6208. Fyrsti vinnudagurinn er á morgun 11. maí. Við leggjum af stað úr Hlíðarþúfum kl 10:00, hittumst við hesthúsið hans Muggs hesthús 409.

Félagið hefur í haft til umráða til fjölda ára beitiland í Krýsuvík sem er í landi Hafnarfjarðar, allir skuldlausir félagar Sörla geta sótt um að hafa hrossin sín þar í sumar og haust beit, en það eru takmörk á hrossafjöldanum, þannig að fyrstur kemur fyrstur fær, við opnum fyrir skráningar 15.maí. Áhugasamir sendi umsóknir á krysuvikurnefnd@sorli.is

Sörli Hestamannafélag, Íþrótt, Lífstíll