Hin árlega folaldasýning Sörla verður haldin laugardaginn 24.febrúar á Sörlastöðum. Sýningin byrjar kl 13:00. Vegleg verðlaun eru í boði og folatollauppboð verður á þekktum stóðhestum. Folald sýningarinnar hlýtur hinn eftirsótta Þjórsárbakkabikar.
Skráningar skal senda á netfangið topphross@gmail.com. Við skráningu þarf eftirfarandi að koma fram:
- -Nafn folalds, uppruni og IS númer
- -Nöfn móður og föður folalds
- -Litur
- -Eigandi og ræktandi folalds
Skráningargjald fyrir folald er 2.000 kr og skráning er ekki gild fyrr en greiðsla hefur borist. Greiða skal inn á reikning: 0545-26-3615, kennitala: 640269-6509 Vinsamlegast sendið staðfestingu á netfangið topphross@gmail.com með nafn folalds sem skýringu. Síðasti skráningardagur er fimmtudagurinn 22.febrúar. Um að gera að sækja folöldin og koma á þessa skemmtilegu sýningu.
Hlökkum til að sjá ykkur.