Laugardaginn 25.febrúar verður hin árlega folaldasýning Sörla haldin á Sörlastöðum. Um er að ræða 10 ára afmæli folaldasýningarinnar og af því tilefni munu koma fram þekktir kynbótahestar sem hafa á árum áður unnið til verðlauna hjá okkur Sörlamönnum á folaldasýningunni.
Vegleg verðlaun eru í boði og folatollauppboð verður á þekktum stóðhestum, meðal annars tollur undir ofurgæðinginn Ljósvaka frá Valstrýtu.Skráningar skal senda á netfangið topphross@gmail.com.
Við skráningu þarf eftirfarandi að koma fram:
-Nafn folalds, uppruni og IS númer
-Nöfn móður og föður folalds
-Litur
-Eigandi og ræktandi folalds
Skráningargjald fyrir folald er 2.000 kr og skráning er ekki gild fyrr en greiðsla hefur borist. Greiða skal inn á reikning: 0545-26-3615, kennitala: 640269-6509
Vinsamlegast sendið staðfestingu á netfangið topphross@gmail.com með nafn folalds sem skýringu.
Skráningu lýkur á miðnætti, 23 febrúar. Hlökkum til að sjá ykkur.
Dagskrá verður nánar auglýst síðar.