Birtingardagsetning: 
þriðjudaginn, 7. nóvember 2017 - 10:48

Fimmtudaginn 9. nóvember kl. 20.00 fögnum við útgáfu bókarinnar Rúna - Örlagasaga eftir Sigmund Erni Rúnarsson í Arnarfelli veislusal Spretts í Samskipahöllinni. Lesið verður úr bókinni og hún verður til sölu á sérstöku tilboðsverði. Þá verður efnt til glæsilegrar sýningar þar sem andi Orra frá Þúfu mun svífa yfir vötnum og heimsmeistarar, Íslandsmeistarar og fleiri fara á kostum.  Það væri okkur sönn ánægja ef þú sæir þér fært að mæta og fagna útgáfunni með Rúnu og Sigmundi Erni!

Sörli Hestamannafélag, Íþrótt, Lífstíll