Birtingardagsetning: 
þriðjudaginn, 19. ágúst 2014 - 10:15
Frá: 

Ágætu knapar

Þeir sem unnu farandbikara á íþróttamóti Sörla í vor geta nálgast þá til umsjónarmanns Sörla, Magnúsar Flygenring.  
Þeir sem unnu farandbikara á gæðingamóti Sörla og eru enn með þá í sínum fórum biðjum við að þeim sé skilað til Magnúsar svo hægt sé að fara með þá í merkingu.  

Ef skipulagið hefur ekki alveg brugðist þá sýnist okkur að það vanti eftirfarandi bikara:

  • Hæst dæmda unghrossið - Skyggnir frá Skeiðvöllum
  • Glæsilegasti gæðingurinn - Haukur frá Ytra-Skörðugili
  • Knapi mótssins - Hanna Rún Ingibergsdóttir
  • A-flokkur gæðinga - Haukur frá Ytra-Skörðugili
  • Hæst dæmdi gæðingur ungmenna - Sorti frá Dallandi

Farandbikarar gæðingamótsins fara í merkingu í vikunni og verður hægt að sækja þá í næstu viku hjá Magnúsi.

Að auki eiga eftirfarandi knapar ósótta verðlaunagripi hjá mótanefnd og geta þeir sótt þá til Magnúsar.

  • Adolf Snæbjörnsson
  • Vilfríður Sæþórsdóttir
  • Karen Woodrow
  • Annabella Sigurðardóttir

 

Með kveðju Mótanefnd.