Brynja Björk Garðarsdóttir, sem starfað hefur sem rekstarstjóri Sörla síðan í haust, hefur sagt starfi sínu lausu og látið af störfum. Stjórn vill þakka Brynju fyrir gott starf og framlag fyrir félagið.
Við starfi rekstarstjóra hefur tekið Þórunn Ansnes, stjórnarmaður og gjaldkeri félagsins. Það er mikill fengur fyrir Sörla að fá Þórunni til starfa, en hún hefur víðtæka reynslu og þekkingu á málefnum félagsins, eftir að hafa verið Sörlafélagi í áratugi og stjórnarmaður. Starf rekstrarstjóra er 60% starf.
Þá hefur Bjarni Hörður Ansnes verið ráðinn umsjónarmaður fasteigna Sörla. Bjarni er 22 ára Sörlafélagi og reyndur hestamaður.
Stjórn Sörla býður þau Þórunni og Bjarna velkomin til starfa og væntir góðs af samstarfi við þau.