Birtingardagsetning: 
föstudaginn, 7. febrúar 2020 - 11:11

Nú þegar eru tveimur námskeiðum á vegum Æskulýðsnefndar lokið. Annað námskeiðið hófst í október og lauk í desember og var undir leiðsögn Ástu Köru Sveinsdóttur, reiðkennara sem lagði áherslu á ásetu og reiðleiðir í bland við skemmtilega leiki. Hitt námskeiðið var undir stjórn Helgu Rósu Pálsdóttur og var þemað í því undirbúningur fyrir keppni. Það námskeið hófst í nóvember og er nýlokið nú í janúar. Bæði námskeiðin voru full og komust færri að en vildu. Að auki eru hópar ungs fólks í hinum sívinsælu knapamerkjum hjá Friðdóru og Ástu Köru. Þau námskeið eru í gangi og verða fram á vor. Félagshesthúsið fór aftur af stað í september og voru um 40 börn sem stunduðu þar hestamennsku strax í haust og verður það starfrækt fram á vor.

Æskulýðsnefnd stóð fyrir unglinga- og ungmennaferð í nóvember þar sem hestabú voru heimsótt og komust færri með en vildu. Félagið hélt í fyrsta sinn árs- og uppskeruhátíð fyrir börn og unglinga sem tókst afar vel og vonumst við til að hátíðin verði árviss viðburður. Nefndin stóð fyrir nýjung í desember "Aðventan í Sörla" sem var viðburðarröð á hverjum sunnudegi aðventunnar þar sem byrjað var á Jólaföndri, síðan síðustu þrjá sunnudagana voru atvinnumenn á svæðinu sóttir "heim" og ýmsir viðburði s.s. Hestaloppan, piparkökumálun og Litlu-Jól. Nefndin fékk æskulýðsnefndir Fáks, Harðar og Spretts með sér í að halda sameiginlegt Jólaball sem tókst vel til og mun vera komið til að vera. Nefndin hélt nýlega kynningarfund á dagskrá nefndarinnar og stofnun æskulýðsráðs sem í eru 7 unglingar á aldrinum 12-16 ára sem starfa með nefndinni að hinum ýmsu viðburðum.

Það er hugur í Æskulýðsnefnd og mikið um að vera og margt á dagskránni þ.á.m. skipulagðar reglulegar reiðmennskuæfingar sem þegar eru hafnar, pollanámskeið, rekstur félagsmiðstöðvar sem fer vel af stað og tilhlökkun er fyrir, ýmsir sameiginlegir reiðtúrar, ýmsar aðrar skemmtanir og fjölskykduhestaferð á Skógarhóla yfir helgi í vor svo fátt eitt sé nefnt.

Miðað við skráningar og fjölda þátttakenda í viðburðum og þá staðreynd að í þá viðburði sem takmarkaður fjöldi þátttakenda er, sé ávalt biðlisti er ljóst að uppbygging nýrrar reiðhallar er orðin annsi aðkallandi svo hægt sé að anna eftirspurninni og hrinda í framkvæmd þeim hugmyndum sem ekki hefur gefist rými til að framkvæma.

Sjáumst hress í vetur!

f.h. æskulýðsnefndar
Dagbjört Hulda Guðbjörnsdóttir

Sörli Hestamannafélag, Íþrótt, Lífstíll