Birtingardagsetning: 
þriðjudaginn, 24. september 2019 - 20:04

Verður haldinn þriðjudaginn 8. október kl. 20:00 að Sörlastöðum.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Fjöldi félagsmanna kunngerður og upplýsingar gefnar um fjölgun þeirra eða fækkun.
3. Formaður leggur fram og skýrir skýrslu stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu ári.
4. Gjaldkeri leggur fram og skýrir reikninga félagsins.
5. Umræður um liði 3 og 4 og atkvæðagreiðsla um reikningana.
6. Formenn nefnda leggja fram og skýra skýrslur um starf viðkomandi nefnda á liðnu ári.
7. Tillaga stjórnar um stofnun nýrrar nefndar um viðrunar og beitarhólf.
KAFFIHLÉ
8. Frambjóðendakynning 
9. Kosning formanns.
10. Kosning fjögurra (af sex) manna í stjórn (þrír til tveggja ára og einn til eins árs) Kosning tveggja endurskoðenda og eins til vara.
11. Kosning í nefndir, deildir og ráð og skal kjósa formenn sérstaklega.
12. Tillaga stjórnar um hækkun á félagsgjöldum lögð fyrir fundinn til samþykktar.  
13. Önnur mál sem félagið varðar.

Ekki verða veitt verðlaun eða viðurkenningar á fundinum. Sá viðburður færist á árshátiðf/uppskeruhátíð félagsins.

Vonumst til að sjá sem flesta félagsmenn.

Stjórn Sörla

Sörli Hestamannafélag, Íþrótt, Lífstíll