Vinnusýning verður með Benna Líndal í reiðhöll Sörla í Hafnarfirði 17.mars n.k. og hefst kl. 20:00.
Benedikt Líndal tamningameistari mætir á staðinn með nokkra hesta á mismunandi stigum í tamningu og þjálfun. Farið verður í grunnvinnu og síðan hvernig hún tengist áframhaldandi þjálfun.
Einstakt tækifæri, fróðlegt og skemmtilegt. Verð kr. 1.500 - Frítt fyrir 12 ára og yngri.
Sjáumst sem flest.
Fræðslunefnd Sörla
Frá: