Viðburðardagsetning:
þriðjudaginn, 6. febrúar 2018 - 19:20
Á þriðjudagskvöldum í febrúar verður Hinrik Þór Sigurðsson með reiðnámskeið. Fyrirkomulag námskeiðsins er þannig að tveir og tveir eru saman í hóp. Kennslan er einstaklingsmiðuð og er tekið tillit til þarfa hvers og eins nemanda. Alls eru um að ræða fjóra tíma sem kenndir verða á þriðjudagskvöldum í febrúar.
Hinrik Þór hefur margra ára reynslu af reiðkennslu og er reiðkennari við Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri.
Skráning er á sportfengur.com og er opið fyrir skráningar til og með 31. janúar. verð kr. 16.500.