Hin árlega folaldasýning Sörla verður haldin laugardaginn 23.febrúar á Sörlastöðum, hefst hún klukkan 13:00. Vegleg verðlaun eru í boði og folatollauppboð verður á þekktum stóðhestum.
Folald sýningarinnar hlýtur hinn eftirsótta Þjórsárbakkabikar.
Skráningar skal senda á netfangið topphross@gmail.com. Við skráningu þarf eftirfarandi að koma fram:
- Nafn folalds, uppruni og IS númer
- Nafn móður og föður folalds
- Litur
- Eigandi og ræktandi folalds
Skráningargjald fyrir folald er 2.000 kr og greiða skal inn á reikning: 0545-26-3615, kennitala: 640269-6509. Vinsamlegast sendið staðfestingu á netfangið topphross@gmail.com með nafn folalds sem skýringu.
Síðasti skráningardagur er fimmtudagurinn 21.febrúar.
Um að gera að sækja folöldin og koma á þessa skemmtilegu sýningu.
Hlökkum til að sjá ykkur; Kynbótanefndin.
Meðfylgjandi mynd er af Þorsteinni Eyjólfssyni og Valdísi Önnu Valgarðsdóttur, eigendum Hnotu frá Þingnesi hún hlaut titilinn folald sýningarinnar 2018 valið af áhorfendum og dómurum.