Birtingardagsetning:
mánudaginn, 11. maí 2015 - 16:16
Frá:
Hin árlega Karlpungaferð hefst á Sörlastöðum miðvikudaginn 13, maí kl. 19,00,-. (daginn fyrir Uppstigningardag). Farið verður í stuttan reiðtúr með einni áningu. Mæta með einn hest.( þetta er ekki sleppitúr! ). Eftir að menn hafa gengið frá sínum hesti verður hátíðarmatseðill, kótelettur í raspi með tilheyrandi meðlæti. Áríðandi er að allir sem ætla að taka þátt mæti á tilskyldum tíma að Sörlastöðum.
Ferðin er eingöngu fyrir karlkyns Sörlafélaga 20 ára og eldri.
Verð kr. 3500,-
Nefndin