Birtingardagsetning: 
fimmtudaginn, 16. apríl 2015 - 10:06

Almennt reiðnámskeið með Hinrik Þór ef næg þátttaka fæst.

Kennslufyrirkomulag eru 30.mín. einkatímar þar sem hver knapi getur ákveðið í samráði við kennara  áherslur í sínum tíma.  Hægt er t.d. að nýta þetta sem undirbúning fyrir komandi keppnistímabil. Gangsetning á trippi. Kynnast nýjum hesti eða bara hvað sem er.

Áætlaðir kennsludagar eru:

  • 22/4  19.00-22.00
  • 27/4  17.00-20.00
  • 28/4  19.00-22.00
  • 4/5    17.00-20.00
  • 6/5   19.00-22.00
  • 8/5   19.00-22.00

Kennari:  Hinrik Þór Sigurðsson

Verð kr. 42.000.- (hægt að skipta í 2 greiðslur ef menn vilja)

Skráning: ibh.felog.is Þá er mikilvægt að haka við Samþykkja skilmála.

Eftir að viðkomandi hefur skráð sig inn er þetta nokkuð ljóst. Síðan þarf maður að velja aðildarfélag í okkar tilfelli á að smella á lógóið fyrir IBH og þá koma þau námskeið sem eru í boði