Lávarðadeildin samanstendur af fyrrverandi formönnum hestamannafélagsins Sörla. Stjórn félagsins getur leitað til lávarðadeildarinnar með málefni sem hún telur henta, t.d. siðamál, fjár- og eignamál og ágreiningsmál. Einnig getur deildin átt frumkvæði að tillögugerð til stjórnar.

Netfang nefndarinnar: lavardadeild@sorli.is

Lávarðadeild, starfsárið 2021 - 2022

  • Páll Ólafsson, deildarformaður
  • Thema Víglundsdóttir, ritari

 

Starfslýsing fyrir Lávarðadeild samþykkt 2019

  1. Samanber 18. gr. í lögum Hestamannafélagsins Sörla.
  2. Lávarðadeild skipa allir fyrrverandi formenn félagsins, enda séu þeir enn félagar.
  3. Deildin komi saman minnst einu sinni á ári. Hús skiptir með sér verkum og kýs sér formann og ritara til eins árs í senn. Formaður boðar til funda.
  4. Stjórn félagsins getur leitað til lávarðadeildarinnar með málefni sem hún telur henta, t.d. siðamál, fjár- og eignamál og ágreiningsmál. Einnig getur deildin átt frumkvæði að tillögugerð til stjórnar.
Merking: