Ísmót verður haldið á Hvaleyrarvatni laugardaginn 24. janúar kl. 13. Keppt er í tölti á beinni braut. Allir keppendur í sama flokki eru saman á brautinni. Þeir ríða hver á eftir öðrum til dóms. Keppt er annars vegar í hægu tölti og hins vegar frjálsri ferð á tölti. Riðnar eru tvær ferðir fram og til baka.
Flokkar í boði:
+ 21 árs og yngri,
+ karlaflokkur,
+ kvennaflokkur,
+ opinn flokkur
Skráning á mótið er í dómpalli á Sörlastöðum frá 10 - 11. Ekki er hægt að taka við skráningu eftir kl. 11 þ.s. ganga þarf frá dómarablöðum of fleira. Biðjum við keppendur að virða skráningartímann. Númer afhent á sama tíma. Greiða verður skráningargjald strax við skráningu. Ekki er hægt að greiða með kortum.
Skráningargjald er 1.500 krónur
Athugið: Engin ábyrgð er tekin á knöpum né hestum á vatninu.
Mótanefndin áskilur sér rétt til að fresta mótinu með stuttum fyrirvara ef aðstæður breytast. Því er mikilvægt að fylgjast vel með auglýsingum frá mótanefnd á heimasíðu og fésbókarsíðum Sörla.
Mótanefnd Sörla