Ferðanefndin vill bara minna á að nú styttist í hinn árlega gamlársdagsreiðtúr, í fyrra mættu um 40 manns. Því er gott að fara að athuga hvort að járna þurfi reiðhrossin? Svo er líka um að gera að  liðka þau dálítið og koma í smá form fyrir skemmtilegheitin. Til gamans látum við fylgja smá upprifjun um járningar fyrir þau sem það þurfa. Ferðanefndin hlakkar til að hitta sem flesta miðvikudaginn 31. desember.

..Þegar hestur sem er búinn að vera ójárnaður í einhvern tíma, er byrjað á að klippa mestan umfram-hófvöxt í burtu með hófbít. Ef það er einhver sem heldur fætinum fyrir járningamanninn, er síðan hófurinn tálgaður hæfilega mikið niður með tálgi, og mótaður þannig eftir því hvað á að gera með hestinn (laga brokk osfrv) og skorið innan úr hófbotninum “dauðan” hóf með hófhnífum. Ef járningamaðurinn heldur sjálfur löppinni notar hann stóran rasp í stað tálgsins. Þegar búið er að móta hófinn er að máta skeifuna og finna stærð sem passar. Þá þarf að hugsa um þykkt skeifna og svoleiðis, og einnig hvort á að nota plastbotna (gott ef hesturinn er sárfættur) eða annað milli skeifu og hófs. Þegar búið er að finna rétta skeifustærð getur þurft að berja hana aðeins til, svo að hún passi fullkomlega. Athuga verður líka að það á ekki að nota sömu skeifur að framan og aftan, heldur sér framfótarskeifur og afturfótaskeifur (framfótaskeifur eru líkari u í laginu). Þá þarf að stilla skeifuna og halda henni á réttum stað meðan fjaðrirnar (naglarnir sem halda skeifunni við hófinn) eru slegnar í. Best er að nota bara 6 fjaðrir þó að flestar skeifur séu með 8 götum, og sleppa þá næstöftustu götunum, því þá helst hófveggurinn sterkari. Það verður að passa að negla ekki í þann hluta hófsins sem er lifandi, því það er sársaukafullt fyrir hestinn og getur valdið helti. Þegar búið er að negla fjaðrirnar í á að klippa endana á þeim með naglbít. Þar á eftir er mjög gott að taka raspinn og nota kantinn á honum til að raspa einskonar rás neðan við alla fjaðraendana. Þegar búið er að því á að hnykkja fjaðrirnar með þar til gerðri hnykkingatöng, og þá er átt við að þær eru klemmdar saman þannig að þær “krumpast” inni í hófnum og halda því skeifunni í staðinn fyrir að renna bara út eftir stuttan tíma, og þá er gott að hafa búið til “rásina” með raspnum, því þá verður festan enn betri. Að lokum er svo bara að snyrta hófinn meðfram skeifunni með hófbít og raspi.
(http://www.hugi.is/hestar/greinar/193923/jarningar/

 

Birtingardagsetning: 
mánudaginn, 15. desember 2014 - 11:38