Á Sumardaginn fyrsta, þann 24. apríl n.k stefnum við Sörlafélagar í heimsókn og útreiðar með Dreyrafélögum á Akranesi. :-) Þetta verður stórfín FJÖLSKYLDUFERÐ fyrir alla þá sem þora að ríða út hinum meginn við Faxaflóa!!
Við stefnum að því að leggja af stað kl. 12:00 frá Sörlastöðum. Hestaflutningabíll verður í boði fyrir þá sem vilja og kostar 5000 kr á hestinn. Þeir sem vilja flytja hross á eigin vegum er það algjörlega heimilt. Að loknum reiðtúr í nágrenni Akrafjalls og Langasands munum við grilla eitthvað góðgæti með Dreyramönnum. Heimferð er áætluð um kl 16.
Það þarf að skrá sig í ferðina hjá Ásu á asaholm@gmail.com fyrir 19. apríl n.k.
Sjáumst
Ferðanefnd